Leikrit Ólafs Hauks Símonarsonar, Hafið, er sneið úr íslenskum veruleika þar sem höfundur bregður sterku ljósi á fólk og tilfinningar á bak við daglegar fréttir af ástandi mála í sjávarútvegi. Hér eru dramatísk fjölskylduátök samofin einkar skarplegri samfélagsgagnrýni. Persónur leiksins eru bráðskemmtilegir íslenskir orðhákar, en oftar en ekki er fyndnin og orðheppnin sprottin af sárri reynslu. Það er sjaldgæft að fá jafn leiftrandi átakaverk úr amstri dagsins, verk sem í senn er meinfyndið og dapurlegt, brýnt, áleitið, ógleymanlegt og satt.