Hikaru Okuizumi er fæddur 1956 á Yamagata í Japan. Hann hefur skrifað fjölda skáldsagna og hlotið margvíslegan heiður í heimalandi sínu. Skáldsagan sem hér birtist á íslensku, Steinarnir hrópa, hlaut hin virtu Akutagawa verðlaun í Japan, en þau eru ein mesta upphefð sem rithöfundur getur hlotnast þar í landi.
Aðalpersóna bókarinnar, Tsuyoshi Manase, er steinasafnari sem hefur barist í seinni heimstyrjöldinni með Hinum keisaralega her Japans. Minningar úr stríðinu ásækja Manase þegar hann verður fyrir ofbeldisfullri reynslu löngu síðar. Sagan er í senn átakleg og skáldleg lýsing á starfsemi minnisins og baráttu mannsins við að staðsetja sig í veruleikanum.
Þýðandi bókarinnar Garðar Baldvinsson hefur þýtt textann úr ensku eftir þýðingu James Westerhoven sem hlotið hefur einstakt lof vestanhafs. Garðar hefur þýtt fjölda skáldsagna og fræðirita.